Ef þú ert að leita að næsta tækifæri í upplýsingatækni, þá ertu á réttum stað
Hjá Advania færðu tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif, láta hugmyndir verða að veruleika, og nýta þekkingu þína til að móta framtíðina.
Betri vinnustaður með réttu áherslunum
-
Á þínum forsendum
Við trúum því að vinna sé ekki bundin við eitt skrifborð, á einum tíma. Þú færð svigrúm til að vinna í fjarvinnu þegar þér hentar.
-
Spennandi verkefni
Hlutirnir þróast hratt í upplýsingatækni og því færðu sífellt að takast á við nýjar áskoranir, tækifæri til að læra og fjölbreytt verkefni sem halda þér á tánum.
-
Þér er treyst
Þú færð traust til að taka ákvarðanir og axla ábyrgð. Þú færð svigrúm til að nýta þína þekkingu og nálgast verkefnin á þinn hátt, bæði sjálfstætt og í nánu samstarfi við viðskiptavini.
-
Persónulegur vöxtur
Þú færð tækifæri til að halda sífellt áfram að læra og þróast. Þegar tæknin breytist færðu tækifæri til að þróa þína þekkingu, bæta við nýrri færni og vaxa í starfi.
-
Góður mórall (í alvöru)
Þú munt hafa frábært fólk í kringum þig. Hér er góð stemning, mikil samheldni, fólk sem deilir þekkingu og styður hvert annað.
-
Heilbrigði á líkama og sál
Þú færð stuðning við heilsu og vellíðan. Við bjóðum upp á frábæra aðstöðu, styrki og fjölbreytt úrræði sem styðja við bæði líkamlega og andlega heilsu.
-
Stuðningur við foreldra
Þú færð stuðning til að samræma vinnu og fjölskyldulíf. Við viljum auðvelda þér að halda góðu jafnvægi sem auðveldar þér að snúa aftur til vinnu eftir fæðingarorlof.
-
Fögnum fjölbreytileikanum
Þú færð tækifæri til að blómstra og láta til þín taka. Við viljum skapa vinnustað þar sem allir fá sömu tækifæri og getum líka haft jákvæð áhrif á jafnrétti í samfélaginu.
Fólkið okkar
- Sérfræðingar á Íslandi
- Starfsmenn hjá Advania samstæðunni
- (af 5) í starfsánægju
- Stemming
Already working at Advania?
Let’s recruit together and find your next colleague.