Nína Birna Þórsdóttir
Vörustjóri H3 – Hugbúnaðarþróun„Það sem gefur mest er þegar breyting fer í loftið sem bætir upplifun notandans og gerir vinnslur í kerfinu léttari.“
Þú hefur tekið við nýju hlutverki hjá Advania sem vörustjóri H3. Hvað felst í því?
Ég hóf störf hjá Advania í september 2020 og starfaði sem ráðgjafi í mannauðslausnum í sex ár áður en ég tók við sem vörustjóri H3 í september 2026. H3 er launa- og mannauðskerfi sem stór hluti íslenskra vinnuveitenda reiðir sig á í hverjum mánuði. Sem vörustjóri ber ég ábyrgð á stefnu H3, forgangsröðun verkefna og að tryggja að kerfið þróist í takt við breytingar á vinnumarkaði og þarfir viðskiptavina.
Þú varst ráðgjafi í sex ár áður. Hvernig nýtist það?
Það er líklega besta veganestið sem ég gat fengið inn í hlutverk vörustjóra. Sem ráðgjafi þjónustaði ég viðskiptavini með allt frá kennslu á kerfin yfir í stuðning við breytta kjarasamninga, skýrslugerð, afstemmingar og innleiðingar hjá nýjum viðskiptavinum. Ég hef því ágætis innsýn í umhverfi okkar notenda, ásamt því að tilheyra sterku teymi sérfræðinga.
Hvernig er dagurinn þinn?
Bestu dagarnir byrja í ræktinni eða enda á náttúruhlaupum. En vinnudagurinn sjálfur byrjar oftast á kaffibolla niðri í Advania og góðu samtali.
Starfið er mikil samvinna, við frábært þróunarteymi, við ráðgjafa og þjónustu, við viðskiptavini og við ytri aðila á borð við Skattinn, lífeyrissjóði og stéttarfélög. Forgangsröðun í þróun H3 er stór hluti starfsins og hún tekst ekki vel nema í virku samtali við notendur kerfisins.
Það sem gefur mest er þegar breyting fer í loftið sem bætir upplifun notandans og gerir vinnslur í kerfinu léttari.
Hver er bakgrunnur þinn?
Áður en ég kom til Advania starfaði ég sem launafulltrúi í ferðaþjónustunni, þannig að ég var notandi kerfanna löngu áður en ég fór að vinna við að þjónusta þau. Ég er viðskiptafræðingur, viðurkenndur bókari og með MS í þjónustustjórnun frá Háskóla Íslands. Rekstrar- og bókhaldsgrunnurinn ásamt þjónustu- og mannauðsvinklinum hefur gefið mér góðan grunn til að byggja ofan á.
Hvernig myndir þú lýsa vinnustaðnum?
Bjartur vinnustaður, með frábært mötuneyti, gullfallegt útsýni yfir Esju og Akrafjall og með langbesta starfsfólkinu.
Nokkrir af starfsmönnunum mínum
Ertu þegar að vinna hjá Advania?
Ráðum í störf saman og finnum næsta vinnufélaga þinn.