Helga Björk Árnadóttir
Deildarstjóri kerfisþjónustu og þróunar – Stjórnun„Það sem mér finnst sérstaklega skemmtilegt er að fá að vinna með fólki, byggja upp öflugt teymi og sjá samstarfsfólk vaxa og þróast í starfi.“
Hver er bakgrunnur þinn og af hverju fórst þú í kerfisstjórnunarnám?
Áhugi minn á tölvum vaknaði mjög snemma. Fyrsta minningin mín tengd þeim var þegar pabbi minn keypti tölvu á heimilið þegar ég var fjögurra ára og leyfði mér að spila tölvuleiki á henni. Ég sýndi tölvum alltaf mikinn áhuga og var send á mitt fyrsta tölvunámskeið þegar ég var 12 ára.
Ég byrjaði að vinna við tækni og tölvur í tæknilegri aðstoð Símans þegar ég var 19 ára gömul og vann þar samhliða skóla í fjögur ár. Eftir það fluttist ég yfir í fyrirtækjaþjónustu Símans og byrjaði að kynnast kerfisstjórnun. Mér fannst þetta rosalega skemmtilegt viðfangsefni og fékk styrk frá vinnuveitanda til að sækja kerfisstjórnunarnám í Promennt stuttu seinna.
Hvernig er að starfa sem deildarstjóri kerfisþjónustu og þróunar?
Bakgrunnur minn í kerfisstjórnun nýtist mér enn á hverjum degi, en starf mitt í dag snýst ekki eingöngu um tæknina sjálfa. Sem deildarstjóri ber ég ábyrgð á að styðja við teymið, þróa þjónustuna okkar og tryggja að við séum að skila viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu. Það sem mér finnst sérstaklega skemmtilegt er að fá að vinna með fólki, byggja upp öflugt teymi og sjá samstarfsfólk vaxa og þróast í starfi
Hvaða verkefnum sinnir deildin þín fyrir viðskiptavini?
Kerfisþjónusta og þróun sinnir fjölbreyttum verkefnum fyrir viðskiptavini Advania, allt frá daglegum rekstri og umsjón kerfa til stærri umbóta- og þróunarverkefna. Hlutverk okkar er að tryggja stöðugan og öruggan rekstur en jafnframt hjálpa viðskiptavinum að nýta tæknina til að ná sínum markmiðum. Verkefnin eru fjölbreytt og engir tveir dagar eins.
Hvað finnst þér skemmtilegast við starfið í dag?
Það sem mér finnst skemmtilegast er samspil tækninnar og mannauðsins. Ég fæ að vinna með öflugu og hæfileikaríku fólki, styðja það í sínum verkefnum og taka þátt í að móta framtíð þjónustunnar okkar. Tæknin þróast hratt og því fylgja stöðugt ný tækifæri til að læra, bæta sig og þróast
Hvað leiddi þig til Advania?
Ég tók mér frí frá vinnunni haustið 2016 til að fara í bakpokaferðalag í Mið- og Suður-Ameríku. Eftir níu mánaða ferðalag fannst mér kominn tími til að breyta til. Ég hitti nokkra starfsmenn Advania eftir að ég kom heim og fann strax að vinnustaðurinn myndi höfða til mín. Ég sótti um og byrjaði svo hjá Advania í desember 2017.
Hvernig er lífið á skrifstofunni/stemningin í deildinni?
Við leggjum mikið upp úr því að hafa gaman í vinnunni og hópurinn okkar er mjög þéttur. Það skiptir miklu máli að geta slegið á létta strengi á milli þess sem við leysum flóknari vandamál og verkefni með viðskiptavinum okkar. Advania er góður vinnustaður með fjölbreytta aðstöðu, gott mötuneyti og virkt félagsstarf, þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Ertu þegar að vinna hjá Advania?
Ráðum í störf saman og finnum næsta vinnufélaga þinn.