Oracle gagnagrunnsstjóri (DBA)
Viltu kafa dýpra í Oracle, skýjatækni og gervigreind? Vertu hluti af öflugu teymi og þróaðu sérþekkingu á rekstri og framtíð gagnagrunnsþjónustu.
Viltu vinna í einu öflugasta Oracle umhverfi landsins?
Við leitum að metnaðarfullum Oracle gagnagrunnsstjóra (DBA) sem vill vinna með öflugar lausnir á sviði gagnagrunna, skýjatækni og gervigreindar. Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna í umfangsmiklu og tæknilega þróuðu Oracle umhverfi, byggðu á Oracle Exadata Cloud@Customer og Oracle Zero Data Loss Recovery Appliance (ZDLRA), með aðgang að helstu valkostum og eiginleikum Oracle Enterprise Edition.
Helstu verkefni
Rekstur, umsýsla og bestun Oracle gagnagrunna á Exadata Cloud@Customer.
Tryggja afköst, öryggi, stöðugleika og hátt þjónustustig.
Umsjón með afritun og endurheimt með ZDLRA.
Vinna með Oracle RAC, Data Guard, Compression, Multitenant og aðrar Oracle lausnir.
Sjálfvirknivæða rekstur með skriftum, skýjalausnum og öðrum tæknilausnum.
Taka þátt í innleiðingu gervigreindarlausna og þróun næstu kynslóðar gagnagrunnsþjónustu.
Við leitum að einstaklingi sem
Hefur reynslu af gagnagrunnum í rekstrarumhverfi. Reynsla af Oracle er kostur en ekki skilyrði.
Hefur sterka greiningarhæfni og áhuga á að leysa krefjandi tæknileg verkefni.
Hefur áhuga á skýjalausnum, sjálfvirknivæðingu og gervigreind.
Vill þróast í starfi og byggja upp sérþekkingu á fremstu Oracle lausnum.
Við bjóðum
Tækifæri til að vinna með öfluga Oracle gagnagrunns- og skýjatækni.
Tækifæri til sérhæfingar í Exadata, OCI, RAC, Data Guard, GoldenGate og fleiri lykillausnum Oracle.
Öflugt tækniteymi, fjölbreytt verkefni og gott umhverfi til að byggja upp sérþekkingu.
Stuðning við símenntun, vottanir og faglega þróun.
Samkeppnishæf kjör og sveigjanlegt vinnuumhverfi.
Ef þú vilt kafa dýpra í Oracle tækni, byggja upp sérþekkingu og taka þátt í að þróa framtíð gagnagrunnsreksturs með skýja- og gervigreindarlausnum, viljum við heyra frá þér.
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
Tekið á móti umsóknum til 11. desember 2026
Yfirferð umsókna
Boðað í fyrstu viðtöl
Boðað í seinni viðtöl
Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
Öflun umsagna / meðmæla
Ákvörðun um ráðningu
Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Sturla Þór Björnsson, deildarstjóri Orra, sturla.thor.bjornsson@advania.is / 4409000.
- Teymi
- Rekstur og innviðir
- Staðsetning
- Ísland
Um Advania
Advania hjálpar viðskiptavinum að takast á við eina af stærstu áskorunum 21. aldar: að halda í við hraðar tæknibreytingar og breyta þeim í raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
Sem traustur samstarfsaðili gerum við fyrirtækjum og stofnunum kleift að fylgja þessum hraða með því að breyta flókinni upplýsingatækni í vel hannaðar lausnir sem einfalda daglegan rekstur.
Með þeirri nálgun stefnum við að því að vera leiðandi samstarfsaðili í upplýsingatækni í Norður-Evrópu.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar í upplýsingatækni. Við erum hluti af Advania samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með 53 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa um 5.000 sérfræðingar í upplýsingatækni.