Sérfræðingur í notenda- og útstöðvaþjónustu á Vestfjörðum
Hefur þú þjónustulund, áhuga á tækni og átt heima á Vestfjörðum? Komdu til liðs við okkur og sinntu fjölbreyttum verkefnum í vettvangs- og notendaþjónustu hjá viðskiptavinum Advania.
Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi í fjölbreytt starf á Vestfjörðum. Starfið er samblanda af vettvangsþjónustu, notendaþjónustu og útstöðvarþjónustu.
Í vettvangsþjónustu mætir þú notendum á staðnum og aðstoðar við tölvur, jaðarbúnað, fundarrými og annan búnað sem daglegt skrifstofustarf byggir á. Þess á milli sinnir þú verkefnum í notenda- og útstöðvarþjónustu Advania, þar sem unnið er meðal annars með Microsoft 365, útstöðvar, símalausnir og almenn upplýsingatæknimál viðskiptavina.
Áhersla er lögð á góða þjónustu, skjóta úrlausn og að tækniumhverfi viðskiptavina sé stöðugt, öruggt og einfalt í notkun. Starfið felur í sér ferðir milli starfsstöðva viðskiptavina á Vestfjörðum.
Helstu verkefni
Vettvangsþjónusta
Þjónusta og tæknileg aðstoð við notendur á vinnustöðum viðskiptavina
Uppsetning, afhending og umsjón með tölvum, símum og jaðarbúnaði
Uppsetning og umsjón með prenturum, skjám, fundarrýmum og öðrum búnaði í skrifstofuumhverfi
Úrlausn tæknilegra vandamála á staðnum og eftirfylgni í samstarfi við framlínu og sérfræðiteymi
Bilanagreining á tölvum, jaðarbúnaði, fundarrýmislausnum og tengingum
Notenda- og útstöðvarþjónusta
Fjaraðstoð og úrlausn mála sem berast í gegnum þjónustukerfi Advania
Umsjón með útstöðvum, notendum og skýjalausnum viðskiptavina, meðal annars Microsoft 365
Aðstoð við símalausnir og almenn upplýsingatæknimál
Þátttaka í verkefnum og rekstri með sérfræðiteymum notenda- og útstöðvarþjónustu
Við leitum að einstaklingi sem
Hefur ríka þjónustulund og á auðvelt með samskipti
Hefur áhuga á tækni og er fljótur að tileinka sér nýja hluti
Er lausnamiðaður, forvitinn og úrræðagóður
Vinnur sjálfstætt og skipulega og sýnir frumkvæði
Þrífst bæði í sjálfstæðri vinnu á vettvangi og í samstarfi við teymi í fjarvinnu
Hæfniskröfur
Bílpróf, þar sem starfið felur í sér ferðir milli starfsstöðva viðskiptavina
Góð þekking á Windows-tölvum, Microsoft 365 og jaðarbúnaði
Reynsla af uppsetningu, rekstri eða úrlausn tæknilegra vandamála
Góð færni í bilanagreiningu og lausn vandamála
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð ásamt góðu skipulagi
Góð íslenskukunnátta
Kostur en ekki skilyrði
Microsoft-vottanir, til dæmis á sviði endpoint- eða Microsoft 365-lausna
Reynsla af rekstri upplýsingatæknikerfa fyrirtækja
Þekking á Active Directory og Microsoft Server
Þekking á fundarrýmislausnum, prentumhverfi eða almennum netbúnaði
Við hvetjum öll kyn til að sækja um. Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar hæfniskröfur hvetjum við þig samt til að sækja um. Þú gætir einmitt verið einstaklingurinn sem við leitum að.
Hjá Advania munt þú
Starfa með öflugu teymi með mikla reynslu og þekkingu á upplýsingatækni
Takast á við fjölbreytt verkefni og leysa raunveruleg tæknileg úrlausnarefni
Fá tækifæri til að þróast í starfi og byggja áfram upp þekkingu þína
Njóta sveigjanleika í starfi þar sem verkefnin leyfa
Vera í samskiptum við fjölbreyttan hóp viðskiptavina
Starfa hjá fyrirtæki sem leggur áherslu á jafnrétti, sjálfbærni og að draga úr kolefnisspori sínu
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
Tekið á móti umsóknum
Yfirferð umsókna
Boðað í fyrstu viðtöl
Boðað í seinni viðtöl
Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
Öflun umsagna / meðmæla
Ákvörðun um ráðningu
Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Skúli Axelsson, deildarstjóri notenda- og útstöðvarþjónustu, skuli.axelsson@advania.is / 4409000.
- Teymi
- Rekstur og innviðir
- Staðsetning
- Ísafjörður
Um Advania
Advania hjálpar viðskiptavinum að takast á við eina af stærstu áskorunum 21. aldar: að halda í við hraðar tæknibreytingar og breyta þeim í raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
Sem traustur samstarfsaðili gerum við fyrirtækjum og stofnunum kleift að fylgja þessum hraða með því að breyta flókinni upplýsingatækni í vel hannaðar lausnir sem einfalda daglegan rekstur.
Með þeirri nálgun stefnum við að því að vera leiðandi samstarfsaðili í upplýsingatækni í Norður-Evrópu.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar í upplýsingatækni. Við erum hluti af Advania samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með 53 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa um 5.000 sérfræðingar í upplýsingatækni.