Sérfræðingur í efnisgerð og samskiptum
Við leitum að öflugum og skapandi aðila í markaðsteymið okkar sem hefur brennandi áhuga á textagerð, frásögn og samskiptum.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf þar sem þú færð tækifæri til að móta og þróa rödd Advania, miðla þekkingu og reynslu sérfræðinga okkar og segja sögur sem skapa áhuga og byggja upp traust. Þú kemur að þróun og framleiðslu á fjölbreyttu efni, allt frá fréttum, greinum og viðtölum yfir í reynslusögur viðskiptavina, efnisskrif fyrir vef og markaðsherferðir.
Þú verður hluti af öflugu markaðsteymi Advania og vinnur náið með sérfræðingum, stjórnendum, vörueigendum og öðrum teymum innan fyrirtækisins. Hlutverk þitt er að draga fram virði Advania, miðla þekkingu og tryggja áhugaverð og samræmd skilaboð sem styrkja vörumerkið og styðja við markmið fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skrifa og ritstýra fjölbreyttu efni, svo sem fréttum, tilkynningum, greinum, viðtölum og kynningarefni
Finna og móta áhugaverðar sögur úr starfsemi Advania, miðla þekkingu starfsfólks og þróa og ritstýra efni fyrir Tæknital
Þróa og framleiða reynslusögur sem draga fram þann ávinning sem viðskiptavinir hafa af samstarfi sínu við Advania
Skrifa auglýsinga- og herferðatexta, efni fyrir markpósta, samfélagsmiðla og aðra stafræna miðla fyrirtækisins.
Skrifa og þróa efni fyrir advania.is með áherslu á notendamiðaða framsetningu og aðlögun efnis að leitarvélum og gervigreind
Tryggja samræmdan tón, málfar og skilaboð í öllu efni með tilliti til gæða og vörumerkis
Veita sérfræðingum, stjórnendum og öðrum teymum fyrirtækisins ráðgjöf um efnisgerð, miðlun og samskipti
Hæfni
Framúrskarandi hæfni í textagerð og ritstjórn
Góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti
Gott auga fyrir áhugaverðum sögum og geta til að gera flókið viðfangsefni aðgengilegt og áhugavert
Hugmyndaauðgi og færni í að aðlaga efni, skilaboð og framsetningu eftir ólíkum miðlum, markhópum og tilgangi
Góð samskiptahæfni, eiga auðvelt með að afla upplýsinga og vinna með fólki úr ólíkum áttum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og hæfni til að halda utan um mörg verkefni í einu
Áhugi á tækni, nýsköpun og viðskiptum og hæfni til að setja sig inn í fjölbreytt málefni
Menntun og reynsla
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði fjölmiðlunar, markaðsfræða eða sambærilegu
Reynsla af textagerð, ritstjórn, efnisgerð og/eða markaðssamskiptum
Reynsla af því að taka viðtöl og vinna upp úr þeim efni er kostur
Þekking á leitarvélabestun og stafrænu markaðsstarfi er kostur
Hjá Advania færðu tækifæri til að hafa áhrif á hvernig við segjum sögur, miðlum þekkingu og byggjum upp sterkt vörumerki. Þú munt vinna með öflugu teymi sérfræðinga í markaðsdeild sem hefur mikinn metnað fyrir því sem það gerir og vinnur saman að því að draga fram það virði sem við sköpum fyrir viðskiptavini okkar.
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
Tekið á móti umsóknum til 2. desember 2026
Yfirferð umsókna
Boðað í fyrstu viðtöl
Boðað í seinni viðtöl
Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
Öflun umsagna / meðmæla
Ákvörðun um ráðningu
Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Auður Karitas Þórhallsdóttir, markaðsstjóri, audur.karitas.thorhallsdottir@advania.is / 4409000.
- Teymi
- Markaðsmál
- Staðsetning
- Reykjavik
Um Advania
Advania hjálpar viðskiptavinum að takast á við eina af stærstu áskorunum 21. aldar: að halda í við hraðar tæknibreytingar og breyta þeim í raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
Sem traustur samstarfsaðili gerum við fyrirtækjum og stofnunum kleift að fylgja þessum hraða með því að breyta flókinni upplýsingatækni í vel hannaðar lausnir sem einfalda daglegan rekstur.
Með þeirri nálgun stefnum við að því að vera leiðandi samstarfsaðili í upplýsingatækni í Norður-Evrópu.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar í upplýsingatækni. Við erum hluti af Advania samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með 53 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa um 5.000 sérfræðingar í upplýsingatækni.