Sérfræðingur í Microsoft lausnum
Viltu þróa og reka Microsoft-umhverfi hjá fjölbreyttum viðskiptavinum? Vertu hluti af öflugu sérfræðingateymi Advania og taktu þátt í að gera lausnir þeirra enn betri.
Rekstrarlausnir Advania leitar að reynslumiklum sérfræðingi með víðtæka reynslu af rekstri Microsoft umhverfa.
Í deildinni starfa 16 sérfræðingar með mismunandi tæknilegar áherslur. Deildin sinnir rekstri Windows og Linux netþjóna hjá viðskiptavinum, rekstri í Azure, Entra ID og Microsoft 365, ásamt rekstri á öðrum tengdum þjónustum og greiningu og úrlausn tæknilegra vandamála.
Helstu verkefni og ábyrgð
Daglegur rekstur Microsoft umhverfa, hybrid og on-premise.
Windows netþjónar og þjónustur
Azure, Entra ID og Microsoft 365
Umbótaverkefni og hagræðingar í eldri umhverfum.
Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina.
Samskipti við viðskiptavini og eftirfylgni þjónustumála og verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
Góð þekking á rekstri Microsoft umhverfa
Góð þekking á Windows Server og tengdum þjónustum
Góð þekking á Azure, Entra ID og Microsoft 365
Gott vald á PowerShell forritun
Hagnýt reynsla af notkun gervigreindartóla í vinnu
Vottuð þekking á sviði ofangreindra Microsoft lausna er skilyrði
5+ ára reynsla af sambærilegu starfi
Góð enskukunnátta
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Framúrskarandi þjónustulund
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
Tekið á móti umsóknum til 12. nóvember 2026
Yfirferð umsókna
Boðað í fyrstu viðtöl
Boðað í seinni viðtöl
Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
Öflun umsagna / meðmæla
Ákvörðun um ráðningu
Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Helga Björk Árnadóttir, deildarstjóri, helga.bjork.arnadottir@advania.is / 4409000.
- Teymi
- Rekstur og innviðir
- Staðsetningar
- Reykjavik, Akureyri
Um Advania
Advania hjálpar viðskiptavinum að takast á við eina af stærstu áskorunum 21. aldar: að halda í við hraðar tæknibreytingar og breyta þeim í raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
Sem traustur samstarfsaðili gerum við fyrirtækjum og stofnunum kleift að fylgja þessum hraða með því að breyta flókinni upplýsingatækni í vel hannaðar lausnir sem einfalda daglegan rekstur.
Með þeirri nálgun stefnum við að því að vera leiðandi samstarfsaðili í upplýsingatækni í Norður-Evrópu.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar í upplýsingatækni. Við erum hluti af Advania samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með 53 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa um 5.000 sérfræðingar í upplýsingatækni.