Sérfræðingur í netkerfum
Viltu móta og innleiða öruggar netlausnir fyrir fjölbreytt fyrirtæki? Vertu leiðandi ráðgjafi hjá Advania og hafðu raunveruleg áhrif á netumhverfi viðskiptavina.
Advania leitar að reyndum sérfræðingi í netkerfum og netlausnum í leiðandi ráðgjafarhlutverk þar sem þú styður bæði viðskiptavini og innri teymi með sérfræðiþekkingu á viðkomandi sviði.
Þú átt í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga, öryggis- og tæknistjóra hjá viðskiptavinum okkar. Þú tekur þátt í að móta þjónustuframboð Advania og veitir ráðgjöf sem hefur raunveruleg áhrif á netumhverfi hjá fjölbreyttum hópi viðskiptavina. Starfið krefst djúprar tækniþekkingar og hæfni til að miðla flóknum málum á skýran og ráðgefandi hátt.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiðandi ráðgjöf, sala og eftirfylgni gagnvart viðskiptavinum
Hönnun, greining og uppsetning á netlausnum
Umsjón og ráðgjöf varðandi veikleikastjórnun og netöryggi
Aðstoða viðskiptavini við að uppfylla tæknilegar þarfir og kröfur
Innleiðingar nýrra viðskiptavina og netlausna
Rekstur og þróun á netlausnum viðskiptavina okkar
Þáttaka í þróun á lausnaframboði, einföldun vinnuferla og umbótum á þjónustu
Framþróun á þekkingu og vottunum
Náið samstarf við vörustjóra net- og öryggislausna, sölu- og rekstrarlausna ásamt öðrum sérfræðingum Advania
Eiginleikar sem við leitum að
Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
Jákvætt hugarfar og lausnamiðuð nálgun
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Brennandi áhugi á upplýsingatækni
Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í hópi
Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólagráða eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi
Að lágmarki tveggja ára reynsla af sambærilegu starfi
Vottanir á borð við Cisco CCNA, CCNP, Fortinet NSE 4-7 eða sambærilegar eru kostur. Ef þær eru ekki til staðar aðstoðum við þig við að komast þangað
Reynsla og áhugi á netlausnum í Azure og/eða AWS er kostur
Reynsla af greiningu og hönnun netkerfa með áherslu á öryggi, áreiðanleika og hagkvæmni er kostur
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
Tekið á móti umsóknum til 3. nóvember 2026
Yfirferð umsókna
Boðað í fyrstu viðtöl
Boðað í seinni viðtöl
Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
Öflun umsagna / meðmæla
Ákvörðun um ráðningu
Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Þór Bjarnason, deildarstjóri Netlausna, hjortur.thor.bjarnason@advania.is / 4409000.
- Teymi
- Rekstur og innviðir
Um Advania
Advania hjálpar viðskiptavinum að takast á við eina af stærstu áskorunum 21. aldar: að halda í við hraðar tæknibreytingar og breyta þeim í raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
Sem traustur samstarfsaðili gerum við fyrirtækjum og stofnunum kleift að fylgja þessum hraða með því að breyta flókinni upplýsingatækni í vel hannaðar lausnir sem einfalda daglegan rekstur.
Með þeirri nálgun stefnum við að því að vera leiðandi samstarfsaðili í upplýsingatækni í Norður-Evrópu.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar í upplýsingatækni. Við erum hluti af Advania samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með 53 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa um 5.000 sérfræðingar í upplýsingatækni.