Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Langar þig að starfa í öflugum hópi og vinna með mörgum af helstu fyrirtækjum landsins? Vegna aukinna verkefna leitum við að kraftmikilli og metnaðarfullri manneskju í starf verkefnastjóra
Langar þig að vinna í öflugum hópi með mörgum af helstu fyrirtækjum landsins?
Vegna aukinna verkefna leitum við að kraftmikilli, úrræðagóðri og metnaðarfullri manneskju í starf verkefnastjóra viðskiptakerfa. Við bjóðum uppá spennandi og gott vinnuumhverfi með fjölbreyttum verkefnum og tækifærum.
Starfssvið
Verkefnastjóri sér um skipulagningu og stjórnun innleiðingaverkefna í samstarfi við viðskiptavini, miðlar stöðu og framvindu, ásamt því að annast gerð greininga og verkáætlana. Verkefnastjóri sinnir samskiptum við starfsfólk og viðskiptavini, tryggir afhendingu afurða og gæði þeirra. Verkefnastjóri sér einnig um samskipti við birgja og aðra samstarfsaðila sem tengjast verkefnum.
Viðskiptalausnir
Innan Viðskiptalausna starfa yfir 140 sérfræðingar við verkefni tengd viðskiptakerfum og stafrænni umbreytingu íslenskra fyrirtækja. Við veitum framúrskarandi þjónustu sem er byggð á djúpri þekkingu á viðskiptakerfum og ferlum. Verkefnastjóri heyrir beint undir forstöðumann Dynamics 365 F&O.
Starfið gæti hentað þér ef þú:
Hefur háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, verkefnastjórnunar, viðskiptafræði eða aðra menntun sem nýtist í starfi
Hefur reynslu af verkefnastýringu
Býrð yfir leiðtogafærni og teymishugsun
Ert fær í skipulagningu og forgangsröðun verkefna
Hefur góða samskiptafærni
Ert drífandi og árangursmiðuð/aður
Hefur reynslu af Dynamics 365 eða öðrum viðskiptakerfum
Hefur skilning á þörfum mismunandi atvinnugreina, viðskiptavina og notenda í tækni
Að auki er mikill kostur ef þú:
Hefur reynslu af verkefnastýringu í innleiðingu viðskiptakerfa
Hefur meistaragráðu í Verkefnastjórnun eða IPMA vottun
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
Tekið á móti umsóknum til 30. október 2026
Yfirferð umsókna
Boðað í fyrstu viðtöl
Boðað í seinni viðtöl
Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
Öflun umsagna / meðmæla
Ákvörðun um ráðningu
Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Gunnur Jónsdóttir, forstöðumaður Dynamics F&O, gunnur.jonsdottir@advania.is / 4409000
- Teymi
- Verkefnastjórnun
- Staðsetning
- Reykjavik
Um Advania
Advania hjálpar viðskiptavinum að takast á við eina af stærstu áskorunum 21. aldar: að halda í við hraðar tæknibreytingar og breyta þeim í raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
Sem traustur samstarfsaðili gerum við fyrirtækjum og stofnunum kleift að fylgja þessum hraða með því að breyta flókinni upplýsingatækni í vel hannaðar lausnir sem einfalda daglegan rekstur.
Með þeirri nálgun stefnum við að því að vera leiðandi samstarfsaðili í upplýsingatækni í Norður-Evrópu.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar í upplýsingatækni. Við erum hluti af Advania samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með 53 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa um 5.000 sérfræðingar í upplýsingatækni.