Vörustjóri notendalausna
Vilt þú móta framtíð notendalausna hjá leiðandi tæknifyrirtæki?
Advania leitar að metnaðarfullum vörustjóra sem vill móta framtíð notendalausna á Íslandi.
Í hlutverkinu berð þú ábyrgð á stefnumótun, þróun og uppbyggingu lausna sem hjálpa fyrirtækjum að skapa nútímalegt og skilvirkt vinnuumhverfi.
Þú vinnur náið með leiðandi tækniframleiðendum, lykilviðskiptavinum, söluteymum og sérfræðingum Advania að því að þróa samkeppnishæft framboð, skapa ný tækifæri og tryggja að viðskiptavinir fái lausnir sem styðja markmið þeirra og framtíðarsýn.
Þetta er fjölbreytt og áhrifamikið hlutverk fyrir einstakling sem hefur áhuga á tækni, viðskiptaþróun og því að byggja upp öflug samstarf sem skila raunverulegum árangri.
Helstu verkefni
Móta og þróa stefnu fyrir notendalausnir og vöruúrval fyrirtækisins
Þróa stefnumótandi samstarf við lykilbirgja og framleiðendur
Samskipti og ráðgjöf við stærstu viðskiptavini fyrirtækisins
Greina markaðsþróun, tækifæri og þarfir viðskiptavina
Stýra líftíma vara og þjónustulausna frá hugmynd til markaðssetningar
Vinna með innkaupadeild að vöruframboði, framboðsöryggi og birgðamálum
Móta vaxtaráætlanir og fylgja eftir árangri vöruflokksins
Styðja sölu- og markaðsteymi með þekkingu, kynningum og viðskiptatækifærum
Koma að þróun nýrra þjónustuleiða og lausna sem skapa aukið virði fyrir viðskiptavini
Taka þátt í samningaviðræðum, samstarfsverkefnum og stefnumótun með lykilbirgjum
Við leitum að einstaklingi sem
Hefur áhuga á tækni, nýjungum og þróun markaðarins
Hefur reynslu af vörustýringu, viðskiptaþróun, sölu eða sambærilegu hlutverki
Er drífandi, lausnamiðaður og á auðvelt með að sjá ný tækifæri
Býr yfir sterkri samskipta- og tengslamyndunarhæfni
Hefur góða greiningarhæfni og viðskiptalegan skilning
Vinnur vel sjálfstætt en nýtur einnig samstarfs þvert á teymi
Hefur gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Af hverju Advania?
Þú færð svigrúm til að hafa áhrif, vinna með sterkasta sérfræðingahópi landsins á sínu sviði og byggja upp langtímasambönd við lykilviðskiptavini. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni, mikla ábyrgð og tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi þróun lausna og þjónustu Advania.
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
Tekið á móti umsóknum til 30. október 2026
Yfirferð umsókna
Boðað í fyrstu viðtöl
Boðað í seinni viðtöl
Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
Öflun umsagna / meðmæla
Ákvörðun um ráðningu
Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Sævar Ríkharðsson, forstöðumaður Workplace lausna, saevar.rikhardsson@advania.is / 4409000.
- Teymi
- Sala og viðskiptaþróun
- Staðsetning
- Reykjavik
Vinnufélagar
Um Advania
Advania hjálpar viðskiptavinum að takast á við eina af stærstu áskorunum 21. aldar: að halda í við hraðar tæknibreytingar og breyta þeim í raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
Sem traustur samstarfsaðili gerum við fyrirtækjum og stofnunum kleift að fylgja þessum hraða með því að breyta flókinni upplýsingatækni í vel hannaðar lausnir sem einfalda daglegan rekstur.
Með þeirri nálgun stefnum við að því að vera leiðandi samstarfsaðili í upplýsingatækni í Norður-Evrópu.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar í upplýsingatækni. Við erum hluti af Advania samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með 53 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa um 5.000 sérfræðingar í upplýsingatækni.