Söluráðgjafi í notendalausnum
Vilt þú hjálpa fyrirtækjum að velja réttu tæknina fyrir framtíðina?
Advania leitar að reynslumiklum söluráðgjafa í notendalausnum sem hefur brennandi áhuga á tækni og hvernig hún skapar virði fyrir fyrirtæki.
Í hlutverkinu vinnur þú með fjölbreyttum viðskiptavinum og hjálpar þeim að velja búnað og lausnir sem styðja starfsfólk þeirra og rekstur, allt frá fartölvum og skjám til fjarfundabúnaðar, heyrnartóla og annarra notendalausna. Þú byggir upp sterk viðskiptasambönd, finnur ný tækifæri og vinnur náið með sérfræðingum, vörustjórum og birgjum að því að skapa framúrskarandi upplifun fyrir viðskiptavini.
Þetta er spennandi tækifæri fyrir einstakling sem sameinar sterka viðskiptahugsun, ráðgefandi nálgun og áhuga á tækni.
Helstu verkefni
Ráðgjöf og sala á notendabúnaði og tengdum lausnum til fyrirtækja
Umsjón með lykilviðskiptavinum og markviss þróun viðskiptasambanda
Greining þarfa viðskiptavina og framsetning á lausnum sem skapa raunverulegt virði
Uppbygging nýrra viðskipta og leit að nýjum tækifærum á markaði
Tilboðsgerð, verðsamningar og eftirfylgni verkefna frá upphafi til enda
Kynningar og fundir með viðskiptavinum, samstarfsaðilum og birgjum
Samstarf við vörustjóra, tækniráðgjafa og innkaupateymi
Þátttaka í útboðum, stærri verkefnum og stefnumótandi viðskiptum
Halda sér upplýstum um nýjungar, markaðsþróun og tæknilausnir
Við leitum að einstaklingi sem
Hefur reynslu af sölu á tæknilausnum eða öðrum flóknum B2B lausnum
Hefur góða þekkingu á tölvum, skjám, fylgihlutum, fjarfundabúnaði og öðrum notendalausnum
Er öflug(ur) í samskiptum og nýtur þess að byggja upp langtímasambönd
Hefur metnað til að ná árangri og þróa eigin viðskiptatækifæri
Er sjálfstæð(ur), skipulögð(ur) og lausnamiðuð(ur)
Hefur góða samningahæfni og viðskiptalega hugsun
Hefur gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Af hverju Advania?
Þú færð svigrúm til að hafa áhrif, vinna með sterkasta sérfræðingahópi landsins á sínu sviði og byggja upp langtímasambönd við lykilviðskiptavini. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni, mikla ábyrgð og tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi þróun lausna og þjónustu Advania.
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
Tekið á móti umsóknum til 30. október 2026
Yfirferð umsókna
Boðað í fyrstu viðtöl
Boðað í seinni viðtöl
Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
Öflun umsagna / meðmæla
Ákvörðun um ráðningu
Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Sævar Ríkharðsson, forstöðumaður Workplace lausna, saevar.rikhardsson@advania.is / 4409000.
- Teymi
- Sala og viðskiptaþróun
- Staðsetning
- Reykjavik
Um Advania
Advania hjálpar viðskiptavinum að takast á við eina af stærstu áskorunum 21. aldar: að halda í við hraðar tæknibreytingar og breyta þeim í raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
Sem traustur samstarfsaðili gerum við fyrirtækjum og stofnunum kleift að fylgja þessum hraða með því að breyta flókinni upplýsingatækni í vel hannaðar lausnir sem einfalda daglegan rekstur.
Með þeirri nálgun stefnum við að því að vera leiðandi samstarfsaðili í upplýsingatækni í Norður-Evrópu.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar í upplýsingatækni. Við erum hluti af Advania samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með 53 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa um 5.000 sérfræðingar í upplýsingatækni.