Verkefnastjóri hjá Mannauðslausnum
Viltu leiða verkefni sem einfalda daglegt starf og styrkja mannauðslausnir íslenskra fyrirtækja? Vertu lykilaðili í að móta stafrænar lausnir sem skapa meira rými fyrir mannlega þáttinn.
Mannauðslausnir Advania leita að öflugum verkefnastjóra til að leiða þróunar- og umbótaverkefni á sviði mannauðslausna. Við leitum að tæknilega sterkum verkefnastjóra sem hefur reynslu af hugbúnaðarþróun, kerfisinnleiðingum eða stafrænum umbreytingarverkefnum. Viðkomandi hefur góðan skilning á upplýsingakerfum, samþættingum og gagnaflæði og nýtur þess að leiða þróun mannauðslausna sem skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
Í starfinu munt þú vinna náið með þróunarteymum, ráðgjöfum, vörustjórum og viðskiptavinum við að móta og innleiða lausnir sem skapa virði fyrir íslensk fyrirtæki. Þú verður lykilaðili í að tryggja að verkefni skili tilætluðum árangri.
Mannauðslausnir Advania þróa og þjónusta lausnir sem hjálpa fyrirtækjum að auka árangur og ánægju starfsfólks og stjórnenda. Lausnir okkar eru meðal annars H3, Vinnustund, Bakvörður, Samtal, Flóra, Vera og Matráður og eru notaðar af þúsundum notenda um allt land. Markmið okkar er að skapa meiri tíma fyrir mannlega þáttinn með öflugum og notendavænum lausnum.
Starfssvið
Verkefnastjóri leiðir þróunar- og umbótaverkefni innan Mannauðslausna og vinnur þvert á teymi, í nánu samstarfi við viðskiptavini, ráðgjafa og þróunarteymi. Hlutverkið felur í sér að halda utan um verkefni frá upphafi til enda og tryggja framgang, gæði og árangursríka afhendingu.
Helstu verkefni
Leiða þróunar- og umbótaverkefni innan Mannauðslausna.
Greina, skilgreina og forgangsraða tæknilegum og viðskiptalegum kröfum í samstarfi við viðskiptavini og þróunarteymi.
Halda utan um verkefnaáætlanir, forgangsröðun og framvindu verkefna.
Greina þarfir viðskiptavina og umbreyta þeim í skýrar kröfur og verkefni.
Fylgja eftir afhendingu og tryggja gæði lausna og þjónustu.
Miðla upplýsingum um stöðu verkefna til hagaðila.
Taka þátt í mótun framtíðarsýnar og áframhaldandi þróun Mannauðslausna Advania.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af verkefnastjórnun hugbúnaðar og/eða innleiðingarverkefna.
Góð tæknileg innsýn og skilningur á hugbúnaðarþróun og upplýsingakerfum.
Góð skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
Góð íslensku- og enskukunnátta.
Hæfni til að leiða verkefni áfram og skapa samstöðu meðal hagaðila
Þekking og reynsla
Þekking á Agile, Scrum eða sambærilegri aðferðafræði er kostur.
Reynsla af kerfisinnleiðingum og þekking á vörustýringu er kostur.
Reynsla af mannauðs- eða launamálum er kostur.
Þekking á mannauðskerfum, launakerfum eða tengdum rekstrarferlum er kostur.
Mannauðslausnir Advania
Hjá Mannauðslausnum starfar öflugur hópur sérfræðinga með áratuga reynslu af þróun, ráðgjöf og þjónustu á sviði mannauðs- og launamála. Við leggjum metnað í að veita framúrskarandi þjónustu og þróa lausnir sem einfalda dagleg störf stjórnenda, mannauðsfólks og starfsfólks. Fram undan eru fjölbreytt og metnaðarfull verkefni og því leitum við að verkefnastjóra sem vill hafa áhrif á þróun lausna sem skipta íslensk fyrirtæki og starfsfólk þeirra máli.
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
Tekið á móti umsóknum til 25. október 2026
Yfirferð umsókna
Boðað í fyrstu viðtöl
Boðað í seinni viðtöl
Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
Öflun umsagna / meðmæla
Ákvörðun um ráðningu
Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Díana Björk Olsen, forstöðumaður Mannauðslausna, diana.bjork.olsen@advania.is / 4409000
- Teymi
- Verkefnastjórnun
Um Advania
Advania hjálpar viðskiptavinum að takast á við eina af stærstu áskorunum 21. aldar: að halda í við hraðar tæknibreytingar og breyta þeim í raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
Sem traustur samstarfsaðili gerum við fyrirtækjum og stofnunum kleift að fylgja þessum hraða með því að breyta flókinni upplýsingatækni í vel hannaðar lausnir sem einfalda daglegan rekstur.
Með þeirri nálgun stefnum við að því að vera leiðandi samstarfsaðili í upplýsingatækni í Norður-Evrópu.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar í upplýsingatækni. Við erum hluti af Advania samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með 53 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa um 5.000 sérfræðingar í upplýsingatækni.