Sérfræðingur í vettvangsþjónustu
Viltu leysa tæknileg vandamál hjá fjölbreyttum viðskiptavinum? Vertu hluti af öflugu teymi og veittu notendum lipra, faglega þjónustu á vettvangi.
Advania leitar að þjónustulunduðum og tæknilega sterkum einstaklingi í vettvangsþjónustu. Starfið snýst um að aðstoða notendur á vinnustöðum viðskiptavina – tölvur notenda, jaðarbúnað, fundarrými og það tækniumhverfi sem daglegt skrifstofustarf byggir á.
Vettvangsþjónustan er sá hluti þjónustunnar sem mætir notandanum á staðnum. Starfið er í nánu samstarfi við hópa Advania sem sinna notenda- og útstöðvaþjónustu, bæði framlínu og sérfræðiteymi, og krefst góðs skilnings á skrifstofuumhverfi fyrirtækja af mismunandi stærð. Mikil áhersla er lögð á notandann sjálfan, skjóta úrlausn mála og að tækniumhverfi viðskiptavina sé stöðugt, öruggt og einfalt í notkun. Í starfinu reynir mikið á bilanagreiningu – að geta á skipulegan hátt fundið rót vandans, hvort sem hún liggur í vélbúnaði, hugbúnaði eða netumhverfi.
Helstu verkefni
Þjónusta og aðstoð við notendur á vinnustöðum viðskiptavina
Uppsetning, afhending og umsjón með tölvum notenda, símum og jaðarbúnaði
Uppsetning og umsjón með prenturum, skjáum, fundarrýmum og öðrum búnaði í skrifstofuumhverfinu
Úrlausn tæknilegra vandamála á staðnum og eftirfylgni mála í samstarfi við framlínu og sérfræðiteymi
Bilanagreining á tölvum, jaðarbúnaði, fundarrýmislausnum og tengingum – að greina orsök vandamála og koma í veg fyrir að þau endurtaki sig
Skráning, skjölun og upplýsingagjöf um mál og verkefni í þjónustukerfi
Hæfniskröfur
Framúrskarandi þjónustulund og lipurð í samskiptum við notendur á öllum stigum
Góð þekking á skrifstofuumhverfi fyrirtækja af mismunandi stærð og þeim búnaði sem þar er notaður
Sterk þekking á Windows-tölvum, Microsoft 365 og jaðarbúnaði – reynsla af uppsetningu, rekstri og úrlausn vandamála
Góð færni í bilanagreiningu – skipuleg og lausnamiðuð nálgun, forvitni og þrautseigja við að leysa tæknileg vandamál, einnig þegar orsökin er ekki augljós
Reynsla af notendaþjónustu, útstöðvaþjónustu eða vettvangsþjónustu
Þekking á fundarrýmislausnum, prentumhverfi og almennum netbúnaði er kostur
Sjálfstæði, frumkvæði og gott skipulag – geta til að halda mörgum málum í gangi samtímis
Nám í kerfisstjórnun, tölvunarfræði eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi
Vottun á sviði Microsoft-lausna er kostur, t.d. Modern Desktop eða Endpoint Administrator
Góð íslensku- og enskukunnátta
Bílpróf, þar sem starfið felur í sér ferðir milli starfsstöðva viðskiptavina
Við hvetjum öll kyn til að sækja um hjá okkur.
Hjá Advania munt þú
Starfa með skemmtilegum hóp af fólki með áralanga reynslu í IT
Vinna að lausn vandamála
Hafa tækifæri til að vaxa og auka þekkingu þína
Starfa á vinnustað sem leggur mikið upp úr sveigjanleika hvað varðar fjarvinnu / staðvinnu.
Vera í samskiptum við fjölbreyttan hóp viðskiptavina sem gera daginn litríkan og skemmtilegan
Hafa aðgang að fjölbreyttu klúbba og félagsstarfi innan fyrirtækisins
Hafa aðgang að kaffihúsi Advania, glæsilegu mötuneyti og líkamsræktarstöð
Starfa hjá fyrirtæki sem er umhugað um kolefnisspor sitt, jafnrétti kynja og sjálfbærni
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
Tekið á móti umsóknum til 12. september 2026
Yfirferð umsókna
Boðað í fyrstu viðtöl
Boðað í seinni viðtöl
Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
Öflun umsagna / meðmæla
Ákvörðun um ráðningu
Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Skúli Axelsson, deildarstjóri Notenda- og útstöðvarþjónustu, skuli.axelsson@advania.is / 4409000.
- Teymi
- Rekstur og innviðir
Um Advania
Advania hjálpar viðskiptavinum að takast á við eina af stærstu áskorunum 21. aldar: að halda í við hraðar tæknibreytingar og breyta þeim í raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
Sem traustur samstarfsaðili gerum við fyrirtækjum og stofnunum kleift að fylgja þessum hraða með því að breyta flókinni upplýsingatækni í vel hannaðar lausnir sem einfalda daglegan rekstur.
Með þeirri nálgun stefnum við að því að vera leiðandi samstarfsaðili í upplýsingatækni í Norður-Evrópu.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar í upplýsingatækni. Við erum hluti af Advania samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með 53 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa um 5.000 sérfræðingar í upplýsingatækni.