Microsoft sérfræðingur
Viltu móta öruggt og skilvirkt Microsoft-umhverfi? Gakktu til liðs við sérfræðiteymi Advania og stýrðu Microsoft 365, Entra ID og Intune með sjálfvirkni að leiðarljósi.
Advania leitar að reynslumiklum einstaklingi í sérfræðiteymi notenda- og útstöðvaþjónustu. Kjarni starfsins er uppsetning, rekstur, stýring og sjálfvirknivæðing Microsoft 365, Entra ID og Intune umhverfum.
Sérfræðiteymið er hópurinn á bakvið framlínuna. Teymið vinnur þétt með framlínunni ásamt öðrum sérfræðiteymum Advania.
Teymið ber tæknilega ábyrgð á þjónustukerfum og ferlum sem deildin rekur og betrumbætir. Teymið sinnir einnig innleiðingum og flóknari verkefnum. Mikil áhersla er lögð á stöðugt, öruggt og otendavænt rekstrarumhverfi en einnig að einfalda, sjálfvirknivæða og bæta þá þjónustu, kerfi og ferla sem notuð eru við þjónustuveitinguna.
Helstu verkefni
Umbætur, stöðlun og sjálfvirknivæðing á þeirri þjónustu, kerfum og ferlum sem notuð eru við notenda- og útstöðvaþjónustu
Innleiðing viðskiptavina í notenda- og útstöðvarþjónustu
Rekstur, stýring uppfærslna og öryggi útstöðva
Umsjón með útstöðvavernd og aðgangsvernd
Hugbúnaðardreifing og uppfærsla forrita
Hæfniskröfur
3+ ára reynsla af kerfisstjórn, útstöðvaþjónustu eða rekstri Microsoft-umhverfa
Sterk þekking á Windows Client, Microsoft 365, Entra ID og Intune – reynsla af uppsetningu og stýringu þessara kerfa, ekki einungis notkun
Reynsla af rekstri útstöðva og innleiðingum tækja
Góð þekking og reynsla á PowerShell æskileg
Nám í kerfisstjórnun, tölvunarfræði eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi
Vottun á sviði Microsoft-lausna er kostur, t.d. Endpoint Administrator, Identity and Access Administrator eða Modern Desktop
Framúrskarandi þjónustulund
Frumkvæði og áhugi á að einfalda, staðla og sjálfvirknivæða þjónustu, kerfi og ferla
Áhugi á upplýsingatækni, notendaþjónustu og öryggismálum
Góð enskukunnátta
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
Tekið á móti umsóknum til 28. september 2026
Yfirferð umsókna
Boðað í fyrstu viðtöl
Boðað í seinni viðtöl
Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
Öflun umsagna / meðmæla
Ákvörðun um ráðningu
Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Skúli Axelsson, deildarstjóri Notenda- og útstöðvarþjónustu, skuli.axelsson@advania.is / 4409000.
- Department
- Rekstur og innviðir
- Starf
- Microsoft 365 sérfræðingur
- Staðsetningar
- Reykjavik
Um Advania
Advania hjálpar viðskiptavinum að takast á við eina af stærstu áskorunum 21. aldar: að halda í við hraðar tæknibreytingar og breyta þeim í raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
Sem traustur samstarfsaðili gerum við fyrirtækjum og stofnunum kleift að fylgja þessum hraða með því að breyta flókinni upplýsingatækni í vel hannaðar lausnir sem einfalda daglegan rekstur.
Með þeirri nálgun stefnum við að því að vera leiðandi samstarfsaðili í upplýsingatækni í Norður-Evrópu.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar í upplýsingatækni. Við erum hluti af Advania samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með 53 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa um 5.000 sérfræðingar í upplýsingatækni.