Business Central ráðgjafi
Langar þig að taka þátt í umbreytingu fyrirtækja með nýjustu Business Central lausnum í skýinu?
Við viljum bæta við góðu fólki í frábært teymi okkar. Passar þú í þann hóp?
Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum ráðgjöfum sem vilja taka þátt í umbreytingu fyrirtækja með Business Central í skýinu. Hjá okkur færðu að vinna með nýjustu lausnir Microsoft, þar á meðal Copilot, AI-virkni og tækni sem er stöðugt að þróast.
Sem ráðgjafi sérðu um þjónustu og daglega sérfræðiráðgjöf til viðskiptavina. Jafnframt tekur þú þátt í innleiðingar- og uppfærsluverkefnum. Verkefnin eru fjölbreytt, krefjandi og gefandi.
Starfið gæti hentað þér ef þú:
Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. viðskiptafræði eða lokið námi sem viðurkenndur bókari
Ert skipulögð/lagður, sýnir frumkvæði og ert sjálfstæð/ur í vinnubrögðum
Ert jákvæð/ur, býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Hefur reynslu og góða þekkingu á fjárhagskerfum, þá sér í lagi Business Central / Dynamics NAV
Að auki er kostur ef þú:
Hefur reynslu af sambærilegu starfi
Hefur góða tækniþekkingu og getu til að setja þig inn í ný kerfi
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
Tekið á móti umsóknum til 31. maí 2026
Yfirferð umsókna
Boðað í fyrstu viðtöl
Boðað í seinni viðtöl
Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
Öflun umsagna / meðmæla
Ákvörðun um ráðningu
Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Svampur Sveinsson, forstöðumaður, svampur.sveinsson@advania.is / 4409000
- Staðsetningar
- Akureyri, Reykjavik, Sauðárkrókur
- Staðsetning fjarvinnu
- Blönduð
Um Advania
Advania hjálpar viðskiptavinum að takast á við eina af stærstu áskorunum 21. aldar: að halda í við hraðar tæknibreytingar og breyta þeim í raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
Sem traustur samstarfsaðili gerum við fyrirtækjum og stofnunum kleift að fylgja þessum hraða með því að breyta flókinni upplýsingatækni í vel hannaðar lausnir sem einfalda daglegan rekstur.
Með þeirri nálgun stefnum við að því að vera leiðandi samstarfsaðili í upplýsingatækni í Norður-Evrópu.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar í upplýsingatækni. Við erum hluti af Advania samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með 53 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa um 5.000 sérfræðingar í upplýsingatækni.